UNÍK er skammstöfun fyrir starf unga fólksins í Kristskirkjunni. Við erum með samkomur á föstudagskvöldum klukkan átta sem eru sérstaklega ætlaðar ungu fólki á aldrinum 13 - 30 ára og eru allir hjartanlega velkomnir.Leiðtogi unglingastarfsins er Kent Langworth og með honum er "staff" sem samanstendur af frábærum einstaklingum sem hafa verið virkir í starfinu um árabil.
Við leggjum áherslu á að hafa samkomurnar fjölbreyttar með hvatningu til að lifa lífi okkar frammi fyrir augliti Guðs og fylgja honum heilshugar. Á samkomum notum við góðan tíma í að lofa Guð og nálgast hann. Við heyrum vitnisburði um hvernig Guð hefur gripið inn í líf okkar og leitum Guðs í bæn og fyrirbænum.
Markmið okkar er að byggja upp sterka fylgendur Jesús Krists sem eru tilbúnir að breiða út bestu fréttir sem við höfum fengið að heyra og leggja sitt fram til að nafn Jesú Krists verði hátt upphafið á þessari jörð.
Allskyns uppákomur eru skipulagðar yfir árið s.s. kökukeppni, kaffihúsakvöld, árshátíð, mót, VISBO, leikjakvöld, samkirkulegt starf og fleira.
Endilega kíktu við í Kristskirkjunni á föstudagskvöldum kl. 20 Sjáumst!


