Íslenska Kristskirkjan

VISBÓ 2010 - UNGLINGAMÓT ÍSLENSKU KRISTKIRKJUNNAR Á EYJÓLFSSTÖÐUM

The player will show in this paragraph

Ýmis myndbönd og tónlist

up direction
Hljóðfæll
Vildís Bjarnadóttir - Selah - Náðugi frelsar...
Hljóðfæll
Um trúna og tilveruna
down direction
Þú ert hérna: Forsíða Starfið Fjölmiðlun
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Fjölmiðlun

Netið
Heimasíða kirkjunnar á netinu er mikilvægur liður í fjölmiðlun safnaðarins. Þar birtast ýmsar fréttir af því sem hefur verið að gerast og tilkynningar um það sem verður á dagskrá. Þar eru einnig margvíslegar upplýsingar um starfið, bæði í máli og myndum. Safn greina er á heimasíðunni og myndrænt efni (video) sem er nýjung á þessari nýju heimasíðu. Við erum með áform um að upptökur sem gerðar eru í kirkjustarfinu verði sýndar á heimasíðunni og þannig geti fólk gert sér betur grein fyrir því sem þar er að gerast.

Sjónvarpsþættir
Mörg undanfarin ár hefur Kristskirkjan gert upptökur á þáttum til sýningar í sjónvarpi. Aðallega hefur þar verið um að ræða viðtals- og fræðsluþátt sem kallast “Um trúna og tilveruna”. Sjónvarpsstöðin Omega hefur verið svo vinsamleg að sýna þessa þætti fyrir okkur. Venjan er sú að nýr þáttur er sýndur vikulega, og þá á ýmsum tímum eftir því hver dagurinn er. Stjórn þáttanna hefur yfirleitt verið í höndum Friðriks Schram, safnaðarprestsins okkar. Fyrst voru þessi þættir teknir upp í myndveri Omega en hin síðari ár hafa þeir verið teknir upp í okkar eigin myndveri. Til stendur að taka líka upp og hefja útsendingar á öðrum þætti “Í umræðunni” og fjalla þar um málefni líðandi stundar út frá kristnum sjónarmiðum. Ætlunin er að setja þessa sjónvarpsþætti inn á heimasíðuna þannig að allir geti séð, bæði nýja svo og eldri þætti.