Lestu þetta ef þú ert að hugsa um að ganga í hjónaband!
Þessi grein birtist í janúarhefti tímritsins "Focus on the Family", árið 1995. Þýtt með leyfi útgefanda.
Dr. James Dobson er upphafsmaður og stjórnandi ráðgjafastofnunarinnar "Focus on the Family"
Nýlega lauk ég við gerð kvikmyndarinnar "Á ystu nöf" en hún er e.t.v. mikilvægasta kvikmynd sem ég hef nokkru sinni framleitt. Í myndinni ræði ég við ungt fólk um mikilvægar ákvarðanir sem það þarf að taka. Tveir þættir í myndinni fjalla sérstaklega um makaval. Í þessari grein gef ég þeim sem eru að hugsa um að ganga í hjónaband sjö góð ráð sem munu auka möguleikana á hamingjuríkri sambúð.
1. Kennari sem, eitt sinn fræddi mig í orði Guðs, gaf mér þetta ráð: "Ekki giftast þeirri manneskju sem þú heldur að þú getir lifað lífnu með, gifstu þeirri sem þú getur ekki lifað án." Þetta er góð ráðlegging. Hjónband getur verið erfitt, jafnvel hjá þeim sem elska hvort annað mjög heitt, en það er hreint kvalræði fyrir fólk sem hefur ekki einu sinni ástina að byggja á.
2. Ekki gagna að eiga þann sem hefur galla sem þú þolir ekki.
Þú ert kannski með áform um að breyta honum eða henni í framtíðinni, en það mun sennilega ekki takast. Hegðun á sér djúpan farveg sem mótaðist snemma í bernsku og sem mjög erfitt er að breyta. Ef þú ætlar þér að breyta gamalgrónu hegðunarmunstri þarftu að "stífla farveginn", grafa nýjan og veita ánni þangað. Slíkar framkvæmdir skila sjaldnast árangri. Ef þú átt erfitt með að þola hegðunarþætti sem koma í ljós hjá væntanlegum maka á trúlofunartímanum, þá er hætt við að þeir eigi eftir að skaprauna þér út hjónabandið.
3. Giftu þig ekki í fljótræði!
Ég þekki enga áhrifaríkari leið til að klúðra lífinu en að gifta sig í flýti án vandlegrar umhugsunar og bænar. Áttaðu þig á, að margt fólk hylmir á trúlofunartímanum yfir staðreyndir, í stað þess að koma með þær fram í ljósið. Báðir aðilar reyna að ganga í augun hvor á öðrum og sýna þess vegna aðeins bestu hliðarnar. Leyndarmálum sem gætu fælt frá er vanlega gætt. Fyrsta árið í hjónabandi verður því mörgum ný opinberun! Ég hvet þig til að taka þér a.m.k. eitt ár til að kynnast "bakhliðinni" á væntanlegum maka -þ.e. hugsunarhætti hans og skapgerð.
4. Ef þú fylgir Kristi af heilum hug, láttu þá ekki henda þig að "ganga undir ósamkynja ok með vantrúuðum."
Þú ætlar þér e.t.v. í framtíðinni að vinna maka þinn til trúar á Drottin, og stundum tekst það. En það er í hæsta máta áhættusamt að treysta á slíkt, nánast fífldirfska.
Spurðu þig þessarar spurningar: Hversu mikilvægt er það að maki minn deili með mér trú minni? Sé það ófrávíkjanlegt grundvallaratriði, eins og Guðs orð segir að það sé hjá trúuðum, þá ætti það að skipta miklu máli þegar taka á ákvörðun um hjónaband.
5. Ekki flytja inn til væntanlegs maka áður en þið giftið ykkur.
Að flytja saman fyrir brúðkaupið er slæm hugmynd af mörgum ástæðum. Í fyrsta lagi, það er ósiðlegt og brot á boði Guðs. Í öðru lagi veikir það sambandið og leiðir oft til skilnaðar.
Rannsóknir síðustu 50 ára sýna að pörum sem lifa saman fyrir hjónaband er helmingi hættara við skilnaði en hinum. Og fólk sem lifir í óvígðri sambúð er einnig hættara við ófullnægju og óstöðugleika í sambúðinni.
6. Ekki vera of ung/ungur þegar þú giftir þig.
Fólki, sem er undir 18 ára aldri þegar það giftir sig, er helmingi hættara við skilnaði en þeim sem bíða til tvítugs eða lengur. Að mynda fjölskyldu og halda henni saman krefst eiginleika sem koma með auknum þroska -óeigingirni, stöðuleika og sjálfstjórn. Best er að bíða uns þeim þorska er náð.
7. Að lokum: Stöðugleiki í hjónabandi er ávöxtur þeirrar einörðu ákvörðunar að láta ástina endast -það er í hnotskurn leyndarmálið að baki hamingjuríku og ævilöngu hjónabandi.
Ef þið ákveðið að ganga í hjónaband, þá skuluð þið gera heit með ásetningi um að vera hvort öðru trú til æviloka. Hótaðu aldrei maka þínum í reiði að yfirgefa hann. Láttu þér ekki einu sinni koma til hugar þann möguleika að skilja. Það að sýna trúfesti má ekki vera valmöguleiki þeirra sem ætla sér alla leið -það er nauðsyn!

