Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða Fræðsla Fræðsluefni Láttu drauminn rætast
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Láttu drauminn rætast

Stundum finnst okkur við misheppnuð, aðstæður okkar næstum vonlausar, annað fólk svo erfitt að við erum alveg að gefast upp á samskipum við það. Hefur þú upplifað þetta? Eru áhyggjur og leiði að buga þig?

Hefur þér fundist þú ekki standast samanburð við aðra, eða að draumar þínir muni ekki rætast svo að þú hefur gefið þá upp á bátinn?

Ertu búinn að sætta þig við að líf þitt verði bragðdauft, þú eigir þér fáa eða enga möguleika um betra líf í framtíðinni, vegna stöðu þinnar núna, vegna þess sem gerðist áður í lífi þínu og rústaði framtíðarmögleika þína? Eða vegna þess að þú ert sá eða sú sem þú ert, án nauðsynlegra hæfileika eða þekkingar? Þú upplifir þig í tapliðinu. Þér finnst þú vera "loser". Kannski vegna þess að það starf sem þú vinnur gefur litla sem enga möguleika að bættum hag og stöðuhækkun?

Ert búinn að gefast upp vegna þess að þú sért of gamall og tækifærin séu runnin þér úr greipum? Abraham var 75 ára þegar Guð kallaði hann til að gera hið ómögulega -verða faðir og eignast son með konu sem var löngu kominn úr barneign! Og það reyndi á trú Abrahams, því að hann varð að bíða í önnur 25 ár áður en fyrirheitið rættist og sonurinn, Ísak, fæddist. Þá var Abraham 100 ára. Ótrúlegt?! Já, en Guði er enginn hlutur um megn.

Drottinn segir: "Ég þekki þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með ykkur, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita ykkur vonarríka framtíð."

Guð er Guð möguleikanna. Enginn hlutur er Guði um megn.

Við erum sköpuð í Guðs mynd. "Sá getur allt sem trúan hefur," sagði Jesús.

"Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig stykan gerir," sagði Páll. Draumur Páls var að fara sem víðast um rómaveldi og stofna söfnuði í helstu borgum. Hann gerði það á á 30 árum! Við eigum öll möguleika á að ná góðum árangri.

Til þess að takast vel upp þarf maður að:

  1. Leita Guðs, þekkja vilja hans og fara eftir honum.
  2. Láta sér detta eitthvað jákvætt og uppbyggilegt í hug (hugmynd sem Guð gefur manni eða hann hefur velþóknun á), eitthvað sem mann langar til að framkvæma til að lífið verði betra og skemmtilegra og ég og aðrir njóti góðs af.
  3. Láta sig dreyma, hugsa, -hvað er það sem mig langar til að koma í verk, gera í framtíðinni, eignast…? fara…?
  4. Hafna því að ég sé "loser", undirmálsmaður, og ekki láta neitt draga úr mér kjarkinn -ekki menntunarskort, lélegt mannorð fjölskyldu minnar, basl, fátækt, og óreglu foreldra, meðalmennsku, neikvæðan samanburður við aðra. Úr flestu þessu má bæta.
  5. Bera hugmyndina sem maður fær fram fyrir Guð í bæn og leita leiðsagnar hans og annarra sem hafa átt sér góðan draum, þekkja Guð og hafa séð drauminn rætast.
  6. Hafa trú, úthald, leita uppörvunar og leiðsagnar frá Guði, leita leiða, vinna af dugnaði að því að ná markinu, gefast ekki upp, ekki láta telja úr mér kjark.
  7. Vera sigurvegari! Gleyma því sem að baki er og þarf að gleyma -gömlu mistökunum, glötuðu tækifærunum -hvað sem það er. Ég þarf að setja strik að baki mér og byrja að gera áætlanir nýja framtíð.
  8. Möguleikarnir og tækifærin eru alls staðar. Láta sér detta færar leiðir í hug og vera djarfur. Síðan getur maður farið þá sem manni líst best á.
  9. Ég, eins og allir aðrir menn, er skapaður til að koma góðum hlutum í verk og ná árangri. Það er vilji Guðs. Ég má ekki láta neitt eyðleggja áform Guðs og vilja með mitt líf. Ég má ekki láta Satan stela frá þér því sem Guð ætlaði mér.
  10. Í dag ætla ég að taka ákvörðun um að byrja að hugsa öðruvísi en ég gerði áður. Nú ætla ég að leita Guðs, taka fram gamla drauminn sem ég trúi að hann hafi gefið mér og sjá hann rætast. Ég ætla með Guðs hjálp og leiðsögn hans að vinna með öllum góðum ráðum að því að koma hugsjón minni í framkvæmd.

Þegar maður er að hugleiða hvað maður eigi að gera við líf sitt og leyfir sér að dreyma um framtíðina, dreyma draum um að koma einhverju góðu til leiðar, þá er nauðsynlegt að hafa eftirfarandi í huga:

Draumur sem er felur í sér eitthvað gott, fagurt og hefur göfugan tilgang er mjög líklega frá Guði kominn. Vilji Guðs er hið góða, fagra og fullkomna (Róm:12:2). Ef ég er í óvissu um hvort framtíðaráform mín séu Guði þóknanleg, get ég borið þau saman við mælikvarðann í Rómverjabréfinu 12. kafla, 2. versi. Ef draumurinn sem ég á mér, snýst fyrst og fremst um eigin velsæld, framgang og heiður, þá gæti hann verið af eigingjörnum hvötum sprottinn og ekki Guði þóknanlegur. Sé hann hins þess eðlis að aðrir, ekki síður en ég, muni njóta árangursins með mér, þá er hann af góðum hvötum sprottinn og sennilega frá Guði. Mikilvægt er því að ég leiti Guðs með framtíðardrauma mína og biðji hann um að rannsaka hjarta mitt og sýna mér hvort ég sé á réttri leið hvað áform mín varðar. Ef ekkert í þeim stangast á við meginreglur Guðs (t.d. boðorðin 10) og kærleikann, en munu þess í stað efla hið góða og verða til blessunar, þá er ég sennilega á réttri leið. En mikilvæg er að biðja og leita Guðs mikið þegar við erum í þessu ferli að finna vilja hans með líf okkar og framtíð. Ef þú ert í óvissu í þessum efnum, leitaðu þá til prestsins þíns eða einshvers góðs þroskaðs kristins vinar, sem hefur reynslu af því að vera lánsamur og vera í vilja Guðs með líf sitt og starf.

Gangi þér vel og Guð blessi þig!