Þetta er saga samtakanna Ungt fólk með hlutverk (UFMH) sem stofnuð voru sem sjálfseignarfélag á hvítasunnudag 6. júní 1976. Þau voru síðan lögð niður þegar Íslenska Kristskirkjan var stofnuð 4. október 1997. Ég var einn stofnenda UFMH og starfaði sem formaður samtakanna allan starfstíma þeirra. Sagan eins og hún er sögð hér er vitaskuld út frá mínum sjónarhóli og minni reynslu. Af þeim sökum er eflaust ýmislegt sem aðrir, sem komu að starfi samtakanna, sakna umfjöllunar um og/eða upplifðu með öðrum hætti en ég. Til hliðsjónar við skrifin hafði ég öll útgefin fréttabréf samtakanna sem til eru svo og bréfasafn þeirra, dagbækur mínar og minnismiða. Einnig bar ég ýmis atriði undir aðila sem á sínum tíma störfuðu innan UFMH og þekktu vel til mála.
Fræðsla