Íslenska Kristskirkjan

Þú ert hérna: Forsíða

Áhugaverðar bækur

Bænaefni
Hvar erum við
Dagskrá kirkjunnar
Eyjólfsstaðir

Mót verður í Vatnaskógi 8. - 11. október 2010

Haustmót kirkjunnar verður haldið í Vatnaskógi dagana 8. - 10. október næstkomandi. Að þessu sinni verða gestir okkar Willy & Gertrud Oehninger frá Sviss og munu þau kenna og þjóna til okkar á mótinu. Við hvetjum helst alla til að koma þangað, því þessi mót hafa þjappað okkur saman og eflt okkur á göngunni með Guði.

Lesa
   
Fyrsti nemendahópurinn

Saga UFMH - fyrri hluti

Þetta er saga samtakanna Ungt fólk með hlutverk (UFMH) sem stofnuð voru sem sjálfseignarfélag á hvítasunnudag 6. júní 1976. Þau voru síðan lögð niður þegar Íslenska Kristskirkjan var stofnuð 4. október 1997. Ég var einn stofnenda UFMH og starfaði sem formaður samtakanna allan starfstíma þeirra. Sagan eins og hún er sögð hér er vitaskuld út frá mínum sjónarhóli og minni reynslu. Af þeim sökum er eflaust ýmislegt sem aðrir, sem komu að starfi samtakanna, sakna umfjöllunar um og/eða upplifðu með öðrum hætti en ég. Til hliðsjónar við skrifin hafði ég öll útgefin fréttabréf samtakanna sem til eru svo og bréfasafn þeirra, dagbækur mínar og minnismiða. Einnig bar ég ýmis atriði undir aðila sem á sínum tíma störfuðu innan UFMH og þekktu vel til mála.

Lesa
   

Samkirkjulegur bænadagur

Samkirkjulegur bænadagur verður haldinn í Reykjavík laugardaginn 18.september. Þá munu fulltrúar frá ýmsum stöðum á landinu hittast og biðja fyrir þjóðinni. Um kvöldið kl.20 verður almenn samkoma í Dómkirkjunni þar sem allt kristið fólk er velkomið. (Sr. Friðrikskapelluhópurinn skipuleggur þennan dag.)
   

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Konukvöld í kirkjunni

Smelltu hérna til að horfa
  • Orð prestsins

  • Greinar

Friðrik SchramÞjóðkirkjan í miklum vanda
Það er sorglegt að verða vitni að þeim ógöngum sem þjóðkirkjan er komin í. En þetta ástand er ekki að ástæðulausu. Eftir að séra Sigurbjörn Einarsson lét af störfum sem biskup þjóðkirkjunnar hefur þar smám saman sigið á ógæfuhlið. Hann var vel kristinn og trúr Heilagri ritningu og viðurkennudum gildum trúar og siðfræði. Lesa meira ...

Greinar um ýmis málefni Á síðunni er fjöldi greina sem eru bæði skrifaðar af safnaðarmeðlimum eða þýddar. Nánar

Íslenska Kristskirkjan

Íslenska Kristskirkjan, Fossaleynir 14 Íslenska Kristskirkjan er lútersk fríkirkja til húsa að Fossaleyni 14 í Grafarvogi. Þar er kirkjusalurinn og skrifstofa safnaðarins, en hún er opin frá þriðjudegi til föstudags frá klukkan 13:00 til 17:00.

Bæklingar